Sameginleg æfing og grillveisla Júdódeildar UMFN og Taekwondodeildar Keflavíkur
25 mai
Sameiginleg æfing með judodeild Njarðvíkur og taekwondodeild Keflavíkur. Eftir æfingu verður grillað og leikið. Allir velkomnir foreldrar og börn.
kl 16:30 - 17:30 11ára og yngri
kl 18 - 19:15 12 ára og eldri
Þjálfarar verða Guðmundur Stefán Gunnarsson og Helgi Rafn Guðmundsson. Báðir eru þeir svartbeltingar og íþrottafræðingar.
Herlegheitin kosta 500kr

Sleipnir Open 2012
Opna Sleipnis mótið í uppgjafarglímu (submission wrestling) verður haldið í íþróttahúsi Akurskóla, Reykjanesbæ laugardaginn 2. júní n.k.Húsið opnar kl 10. Keppni byrjar kl 11.
Keppendur senda skráningu á helgiflex@gmail.com og skráningin þarf að innhalda
Fullt nafn
Aldur
Belti í bjj, judo og eða reynsla í öðrum bardagaíþróttum
Félag sem viðkomandi æfir í
Þyngd (vikmörk eru 2 kg)
Keppnisgjald er 2500 kr og leggst inn á reikning 0121-26-016802 og kennitalan er 6802110430
Einnig er hægt að greiða við vigtun
Skráningar er til mánudagsins 28. maí kl. 23:59
Aldurstakmark er 16 ára.
Keppendafjöldi er takmarkaður við 100 keppendur
Keppendum verður skipt í hópa eftir þyngd. Ef mótshaldarar telja að ákveðnir keppendur eiga betur heima í öðrum flokk með tilliti til reynslu og aldurs þá áskilja þeir sér þann rétt að færa þá til. Áður en keppni hefst í hverjum flokki fyrir sig verður vigtað keppendur inn. Ef keppendur vigtast meira en 2 kg yfir skráða þyngd fá þeir ekki að keppa.
Veitt verða verðlaun fyrir 1-3 sæti í hverjum flokki og að auki verða veitt peningaverðlaun fyrir:
1. Keppandi mótsins (sá sem sigrar erfiðasta flokkinn. Ef vafamál er um það þá geta dómarar beðið sigurvegara úr flokkum að keppa saman.) Keppandi mótsins fær 30% heildarinnkomu mótsins
2. Glímu mótsins (hvor keppandi fær 10 % af heildarinnkomu mótsins)
3. Tilþrif mótsins (keppandinn fær 10% af heildarinnkomu mótsins, ef dómarar velja fleiri en eitt tilfþrif mótsins þá dreifist verðlaunaféð á þá keppendur)
Það má ekki
Fyrir brot á þessum reglum eða tilraun til þess mun dómari gefa keppanda viðvörun. Ef keppandi brýtur reglur gróft, sýnir sinnuleisi í því að fara eftir reglunum eða reynir að valda andstæðing sínum skaða getur dómari dæmt viðkomandi keppanda úr leik án viðvarana.
Það getur verið að þessi listi sé ekki tæmandi. Á mótsdag kl 10:30 verður keppendafundur þar sem farið verður yfir reglur og keppendur geta spurt.

- Keppt verður í nogi glímu þar til annar keppandi gefst upp eða ef dómari stöðvar glímu. Ekki verða gefin stig.
- Ef glíma dregst á langinn og keppandi sýnir ekki fram á vilja til að sigra glímu eða halda glímu áfram getur dómari gefið keppanda aðvörun. Ef keppandi fær þriðju aðvörun fyrir sóknarleysi eða töf þá er hann dæmdur úr leik.
- Ef annar keppandi lendir í slæmri stöðu og sýnir ekki fram á að hann reyni að komast úr henni, heldur reynir bara að koma í veg fyrir að lenda í uppgjafartaki þá getur sá keppandi fengið aðvörun fyrir sóknarleysi.
- Ef báðir keppendur eru komin í stöðu þar sem hvougur getur sótt eða keppendur sýna að þeir geta ekki bætt stöðu sína eða klárað með uppgjafartaki þá gefur dómari þeim smá tíma (ca30 sekúndur) til að bæta stöðu sína (breyta um stöðu) eða klára glímu. Ef það hefur ekki gerst þá getur dómari stöðvað glímuna og látið keppendur standa upp að nýju.
- Ef dómarar telja að glíma hefur dregist verulega á langinn getur þeir ákveðið að hafa aukalotu sem er 3 min. Í þeirri lotu fá þeir stig sem ná fleiri sóknarbrögðum eða lásatilraunum sem voru nálægt því að sigra glímu. Eftir tímann telja dómarar stig og úrskurða sigurvegar. Sóknarbrögð eru t.d. : takedown, sweep, guard pass, mount, back mount og lása/hengingartilraunir sem dómari telur að hafi verið nægilega vel framkvæmd til að hugsanlega geta klárað glímu (sama og advantage).
- Glímur byrja standandi og það má “pulla guard”. Ef keppandi notar ítrekað það að “pulla guard” eða aðrar stöður til að tefja glímu, eða koma í veg fyrir að keppendur geti sótt þá má dómari aðvara hann.
Það má ekki
- Slamma úr gólfstöðu. Þ.e. að lyfta keppanda sem var á bakinu eða kviðnum upp og skella honum aftur niður í þá stöðu. Það má hinsvger lyfta keppanda sem er á öðru eða báðum hnám og snúa honum yfir á bakið eða hliðana.
- Gera snúandi fótalása t.d. heel hook eða toe hold.
- Slá, kýla, sparka, klóra, kitla, pota í líkamsop.
- Snúa upp á háls eða hrygg, t.d. snúandi neck crank eða twister. Einnig er bannað að gera can opener eða álíka neck crank lása.
Fyrir brot á þessum reglum eða tilraun til þess mun dómari gefa keppanda viðvörun. Ef keppandi brýtur reglur gróft, sýnir sinnuleisi í því að fara eftir reglunum eða reynir að valda andstæðing sínum skaða getur dómari dæmt viðkomandi keppanda úr leik án viðvarana.
Það getur verið að þessi listi sé ekki tæmandi. Á mótsdag kl 10:30 verður keppendafundur þar sem farið verður yfir reglur og keppendur geta spurt.
Góð ferð á krónumót Ármanns
Um helgina fór fram í Þróttaraheimilinu í laugardal Opna Krónumótið í Júdó. Þetta mót var fyrir börn á aldrinum 6-10ára.
Mikið var um skemmtilegar viðureignir og margir sigrar unnir. Flestir sigrarnir voru með því móti að andstæðingar voru lagðir en aðrir sigrar og ekki síður stórir voru með öðurm hætti. T.d. að muna allar keppnisreglur, taka tapi með reisn svo að dæmi séu tekin. Ef smellt er á myndina hér til vinstri er hægt að sjá nokkur myndbönd af mótinu.

Góðir gestir þessa vikuna hja júdódeild UMFN
Miðvikudaginn 2. maí þjálfar Gunnar Örn Guðmundsson 1.dan elsta hópinn frá klukkan 17:30-18:30. Gunnar var Íslandsmeistari í sínum þyndarflokk árið 1976 og hefur gífurlegareynslu og er sérfróður í gólfglímu og í gömlu brögðunum.
Svo á Föstudaginn kemur hinn eitilharði stórmeistari, Hermann Unnarsson. Hermann hefur keppt á mörgum stórum mótum svosem World Cup, NM, EM. Hann hefur ná frábærum árangri hér heima og utan landsteinanna.
Birkir Freyr Guðbjartsson verður aðalþjálfari yngri flokka þessa viku það er barna 13 ára og yngri.

Opna krónumótið í Júdó (10 ára og yngri)
Laugardaginn 12 mai fer fram opna krónumótið í júdó. Keppt verður í húsakynnum Ármanns sem er í Þróttaraheimilinu í Laugardalnum (fyrir framan Laugardalshöllina)
Mæting er klukkan 10:00 fyrir framan Reykjaneshöllina og tekið manntal (þeir sem ekki hafa möguleika á að fá far með foreldrum geta þá kannski farið með foreldrum annara barna eða þjálfaranum.
Við þurfum að vera mætt klukkan 11:00 og Keppni hefst klukkan 12:00. Keppt er á þremur völlum þannig að mótið á að taka mjög skamma stund.
Allir fá verðlaunapening enda er þáttaka á móti á þessum aldri mikill sigur. (einnig er möguleiki á að börnin fái einhvern auka glaðning) Nánari upplýsingar koma í vikunni.

Stórkostlegum æfingabúðu með Árna Isaksen og Daða Ástþórssyni lokið
Um helgina kom hinn reinslumikli Árni "úr járni" Ísakson sem hefur keppt í blönduðum bardagalistum (MMA) og Daði Ástþórsson þjálfari hans í heimsókn til bardagadeildanna sem starfræktar eru í reykjanesbæ. Námskeiðið var opið öllum sem áhuga höfðu. Daði fór í grunn hnefaleikaþjálfunar og Árni kenndi þeim sem mættir voru sín bestu brögð til að yfirbuga andstæðinga sína og miðlaði af keppnisreynslu sinni.
Námskeiðið heppnaðist með afbrigðum vel og vonandi fáum við að njóta visku annara bardagaíþróttamanna fljótlega.
Námskeiðið heppnaðist með afbrigðum vel og vonandi fáum við að njóta visku annara bardagaíþróttamanna fljótlega.
Frí 1.maí
Allar æfingar yngri flokka falla niður þriðjudaginn 1. maí. Æfing í BJJ (gólfglímu) verður uppi í íþróttahúsinu í Ásbrú.
Kveðja þjálfarar
Kveðja þjálfarar
Úrslit Íslandsmóts barna yngri en 14ára
Um helgina fór fram á Akureyri Íslandsmót 11-14ára barna. Tíu júdókrakkar frá Júdódeild Njarðvíkur tóku þátt og stóðu sig svakalega vel. Magnús Már Hrannarsson og Bjarni Darri Sigfússon kræktu sér í brons, Joseph Petterle, Júlíus Viggó Ólafsson, Guðjón Oddur Kristjánsson, Tanja Sædal Geirsdóttir, Hilmar Þór Magnússon og Dagbjartur Tryggvi Arnarsson unnu til silfurverðluana. Júdódeildin náði sér í enn einn Íslandsmeistara titil þegar Marín Veiga Guðbjörnsdóttir tók þátt í drengjaflokki og gjörsigraði hann. Sveit Njarðvíkur krækti sér einnig í brons í sveitakeppninni. Sveitina skipuðu Dagbjartur Tryggvi, Júlíus Viggó, Fannar Logi, Hilmar Þór, Aron Viðar og Tanja Sædal.
Á fyrsta starfsári hefur deildin unnið til 8 stórra titla. Tveggja Íslandsmeistaratitla í Júdó U15 og U17, Tveggja Íslandsmeistaratitla í Brazilina jiu jitsu U14 og fjögurra Mjölnis Open meistaratitla, þar af tvo í fullorðinsflokk og tvo í unglingaflokk.
Glæsileg framistaða sem við getum verið mjög stollt af.

Gestaþjálfarar þessa vikuna
Á þriðjudaginn kl 19:15 fáum við Arnar Frey Vigfússon, einn af frumkvöðlum BJJ á Íslandi, margfaldan Íslands og Mjölnir Open meistara í BJJ.
Á miðvikudaginn kl 17:30 kemur Anna Soffía Víkingsdóttir margfaldur norðurlanda og Íslandsmeistari í Júdó og tvöfaldur Íslands og Mölnir Open Meistari í BJJ.
Þeir sem eru 13 ára og eldri og æfa með Júdódeildum á Reykjanesi mega koma á þriðjudagsæfinguna og einnig á miðvikudagsæfinguna.
Fjölmennum og nýtum okkur reynslu þessa frábæra keppnisfólks og þjálfara.

Allar æfingar falla niður á morgunn vegna árshátíðar máltíðar Akurskóla og árshátíðaballs Reykjanesbæjar.
Strandhögg Njarðvíkinga
Júdómenn UMFN gerðu það gott um helgina á íslandsmóti 15-16ára og 17-20 ára. Njarðvíkingar sendu 7 keppendur á mótið og unnu þeir til alls 5 verðlauna. Brynjar Kristinn Guðmundsson varð Íslandsmeistari í +90kg flokki 15-16ára, Ástþór Andri Jónsson hlaut silfurverðluan og Kristján Snær Jónsson bronz
í sama þyndar og aldursflokki. Alexander Hauksson glímdi um bronzið og hlaut sigur eftir harða rimmu sem endaði með því að Alexander þvingaði andstæðing sinn til uppgjafar með svokallaðri hengingu. Í flokki 17 til 20 ára kepptu þeir Birkir Freyr Guðbjartsson og Egill Steinar Hjálmarsson. Birkir Freyr krækti í þriðja sætið í sínum þyngdarflokk (-90kg) með því að skella andstæðing sínum og halda honum í fastataki í 25 sek.
Þessi árangur má kallast nokkuð góður miðað við starfstíma deildarinnar.
Þessi árangur má kallast nokkuð góður miðað við starfstíma deildarinnar.
Íslandsmót í Júdo fyrir 14 ára og yngri fæddir 1998-2001
Lagt verður af stað á Íslandsmót 14 ára og yngri föstudaginn 30 mars klukkan 14:00 frá Reykjaneshöllinni.
Kostaður við mótið er eftirtalinn:
Far:5000kr (gert er ráð fyrir foreldrakeyrslu.)
Gisting 1500kr með morgunmat.
4 máltíðir: 6000kr.
heildarkostnaður er um 15000kr.
Þeir sem geta keyrt á föstudeginum og farið heim á laugardagskvöld endilega hafið samband við mig í síma 7738091 eða á gudmundurstefan@gmail.com

Úrslit Góumótsins.
Til hamingju með árangur helgarinnar.
Yngstu iðkenndur JDN/Sleipnis gerðu það gott um helgina á Góumóti Júdófélags Reykjavíkur. 60 börn frá átta félögum á aldrinum 6-10 ára kepptu á mótinu sem sjaldan ef nokkurn tíman hefur verið svona fjölmennt. Júdódeildinn sendi flesta keppendur á mótið og árangurinn lét ekki á sér standa. Þeir Hermann Nökkvi Gunnarsson (9ára) , Gunnar Örn Guðmundsson (9ára) og Tómas Andrason (8ára)hrepptu gullverðlaun, Benjamín Jafet Sigurðarsson og Brynjar Þór Ingibergsson hlutu silfurverðlaun og Frosti harðarsson ( 8ára), Daníel Patrik Reiley hlutu bronsverðlaun. nánar er fjallað um mótið á judo.is

Góumót JR
Góu mót JR verður haldið næsta Laugardag og hefst kl. 10 í salarkynnum júdódeildar Reykjavíkur í Ármúla 17a.
Þetta er mót fyrir aldurshópinn 6-10 ára.
Allir fá verðlaun.
Við hjá Júdódeil Njarðvíkur mætum niður í Reykjaneshöll klukkan 08:55 þar sameinum við í bíla og leggjum af svo af stað klukkan 09:05
Mótsgjaldið er 1000kr borgað á mótsstað.

Íslensk Glíma
Nú geta allir þeir sem eru 12 ára og eldri komið á glímuæfingu hjá Júdódeild UMFN. Glímuæfingar eru á miðvikudögum klukkan 15:00-ca 16:00. Allir velkomnir.
Þjálfari er Sólveig Rós Jóhannsdóttir tvöföld freyjuglímudrottning
Þjálfari er Sólveig Rós Jóhannsdóttir tvöföld freyjuglímudrottning
Upplýsingar um kyumótið
Mæting kl 8:15 við Reykjaneshöll.
Lagt af stað klukkan 8:30 frá Reykjaneshöllinni.
Mótið hefst kl. 10:00 (+-30min)
Staðsetningin er skógarsel 12 Garðabær.
Munið eftir nesti og hreinum júdógöllum.
Lagt af stað klukkan 8:30 frá Reykjaneshöllinni.
Mótið hefst kl. 10:00 (+-30min)
Staðsetningin er skógarsel 12 Garðabær.
Munið eftir nesti og hreinum júdógöllum.
SJÁLFSVARNARNÁMSKEIÐ FYRIR KONUR
Fyrir konur – (16 ára og eldri)
9 tíma sjálfsvarnarnámskeið
Áhersla lögð á að kenna einstaklingum að bregðast rétt við óvæntum árásum. Námskeiðið verður byggt upp á skemmtilegum æfingum sem geta nýst viðkomandi beint eftir námskeiðið .
Kennari á námskeiðinu er Guðmundur Stefán Gunnarsson 1.dan í Judo en hann hefur mikla reynslu af kennslu í sjálfsvörn.
Áhersla:
-Skilvirk sjálfsvörn fyrir konur
-Alhliða líkamsrækt
-Góð uppbygging á sál og líkama
Kennt er í aðstöðu Júdódeildar UMFN í Reykjaneshöllinni
Mán og miðv. Kl. 20.00 – 21:30
Námskeið hefjast mánudaginn 12 mars
Verð: 5000kr (hámarksfjöldi á námskeið er 10 konur)
Skráning í síma 773 8091 eða á póstfang gudmundurstefan@gmail.com

Algjört fíaskó
Sælir foreldrar og forráðamenn barna í Júdódeild UMFN,
Til fjáröflunar fyrir félagið höfum við til sölu nýtt íslenskt borðspil sem ber hið skemmtilega nafn FÍASKÓ og er orðskýringar og látbragðsspil. Spilið er stórskemmtilegt og tilvalin jóla, afmælis eða möndlugjöf.
Við getum boðið spilið á góðu verði þrátt fyrir að um fjáröflun sé að ræða eða aðeins 3.500 krónur (almennt verð útí búð er 4.900 kr.).
Hvað ætlar þú að panta mörg? Sendið endilega línu á gudmundurstefan@gmail.com ef þið hafið áhuga eða hafi einhverjar spurningar. Þið verið ekki svikin af Fíaskó!
Hér má sjá nokkra valinkunna andans menn spila Fíaskó og skemmta sér fáranlega vel.
http://www.mbl.is/frettir/sjonvarp/64731/
Fíaskó á Facebook
http://www.facebook.com/#!/pages/F%C3%ADask%C3%B3-%C3%ADslenska-part%C3%BDspili%C3%B0/286963407992302
Um spilið.
Fíaskó er alíslenskt orðskýringa og látbragðsspil fyrir fólk sem vill skemmta sér vel í góðra vina hópi. Spilið er bæði mjög einfalt og stórskemmtilegt. Hvort sem þú ert að spila með fjölskyldu, vinum eða vinnufélögum þá er Fíaskó klárlega málið !
Í Fíaskó reynir á athyglisgáfur leikmanna ásamt færni þeirra til að hugsa út fyrir kassann. Spilið gengur útá það að fá meðspilara sinn til að komast að því hvaða íslensku kvikmynd, hljómsveit, persónu, lag, sjónvarpsþátt eða bók leikmaðurinn er að túlka, hvort sem það er með orðum, orði eða látbragði.
Hvernig myndir þú lýsa Gleðibankanum eða Jóni Sigurðssyni?
Hvernig myndir þú lýsa Svartur á leik eða Útsvari í einu orði?
Hvernig myndir þú leika Stuðmenn eða Jón Pál?
Bestu kveðjur,
Júdódeild UMFN

Bushido
Jólagjafir fyrir alla júdókrakka fást í bushido.
Klikkið á myndina til að fara inn á síðuna.
Ég mæli með göllum frá budo nord.
Guðmundur Stefán Gunnarsson, þjálfari.
Klikkið á myndina til að fara inn á síðuna.
Ég mæli með göllum frá budo nord.
Guðmundur Stefán Gunnarsson, þjálfari.
Video og skemmtikvöld
Videopartý fyrir Æsi og Álfa (8-13ára) er í íþróttahúsi Njarðvíkur á föstudaginn 11. desember frá 16:00-18:00
Sýnd verður mynd (Rango) á breiðtjaldi og einnig geta krakkarnir tekið með sér spil. Foreldrar eru velkomnir.
Pönntuð verður Pizza og krakkarnir mega koma með eitthvað að drekka að heiman.
Það sem þarf að taka með er: Góða skapið
800 íslenskar krónur
Spil (ef þið eruð í spilastuði).

Sögulegir sigrar krakkana í júdódeild Njarðvíkur
Fimmtudaginn 17 nóvember tók Júdodeild Njarðvíkur þátt í fjórðungsglímu Suðurlands í íslenskri glímu. Þetta er í fyrsta skipti í 42ár sem annað félag en þau sem keppa undir merkjum HSK (héraðssambandsins Skarphéðins) keppir og vinnur til verðlauna. Njarðvíkingarnir sópuðu til sín verðlaunum í næstum öllum flokkum. Kepp var í flokki 10-11ára, 12-13ára 14-15ár og í fullorðinsflokki.
Í flokki 12-13ára var Njarðvík með 1 keppanda, Ævar Þór Ómarsson. Vann til silfurverðlauna og úrslitin voru ekki ráðin fyrr en í síðustu glímu.
Í flokki 14 til 15 ára skipuðu Njarðvíkingar sér í 3 efstu sætin. Það voru þeir Kristján Snær Jónsson sem var í fyrsta sæti, Ástþór Andri Jónsson sem var í öðru sæti og loks var það Hafþór Orri Harðarson sem krækti sér í þriðja sætið.
Einn keppandi tók þátt í 14-15ára flokki stúlkna. Það var Sóley Þrastardóttir. Hún gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn flokk sem var einn af sterkustu flokkum mótsins. Þessi flokkur innihélt nefnilega tvær sterkustu glímukonur íslands.
Í fullorðinsflokk gerði Birkir Freyr Guðbjarsson sig lítið fyrir og nældi sér í þriðjasæti.
Á þessu keppnistímabili hefur Júdódeilin haslað sér völl í öllum fangbrögðum á Íslandi. Keppendur deildarinnar hafa unnið til verðlauna á öllum mótum sem þeir hafa tekið þátt í auk allra titlana sem hafa komið í hús. Þrír íslandsmeistaratitlar unglinga í Brazilian Jiu-jitsu, 2 fjórðungsmeistaratitlar í íslenskri Glímu, og tveir Haustmótsmeistarar í Júdó.
Fyrstu Íslandsmeistaratitlum Júdódeildar UMFN landað.
Fyrstu Íslandsmeistaratitlum Júdódeildar UMFN landað.
Um helgina var haldið Íslandsmeistaramót ungmenna í Brasilísku jiu-jitsu. Njarðvíkingar sendu 18 galvaska keppendur sem margir hverjir voru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Júdódeildin eignaðist þrjá nýja íslandsmeistara í greininni. Grindvíkingurinn knái, Björn Lúkas Haraldsson, sigraði 14-17 ára -88 kg flokkinn með nokkrum yfirburðum. Þess má geta, að Björn Lúkas er Íslandsmeistari og tvöfaldur Norðulandameistari í Júdó með Júdódeild Grindavíkur, tvöfaldur Íslandsmeistari í Brasilian Jiu Jitsu og vann til bronsverðlauna í Norðurlandameistaramóti fullorðina fyrir Júdódeild Njarðvíkur/Sleipni í sömu grein, aðein 16 ára gamall. Annar Grindvíkingur, Guðjón Sveinsson, kom öllum á óvart og nældi sér í brons í 70kg flokki 14-17ára. Bjarni Darri Sigfússon sem er 12 ára gamall, sigraði allan 12-14 ára flokkinn og varð Íslandsmeistari. Hann hefur því unnið til verðlauna í öllum stærstu fangbragðamótum sem keppt er í á Íslandi, Haustmóti JSí (bronz) Meistarmót Íslands í glímu (silfur), Íslandsmeistaramót í Bjj (gull). Í yngsta flokknum 8-11 ára, unnu keppendur Júdódeildarinnar næstum allt sem þeir gátu unnið. Fjórir keppendur tóku þátt, það voru þeir Hilmar Þór Magnússon, Samúel G Luppi, Hermann Nökkvi Gunnarsson og Aron Viðar Atlason. Keppt var í þremur þyngdarflokkum. Í þyngsta flokknum +40kg Var Hilmar í fyrsta sæti, Samúel í öðru og Hermann í því þriðja. Það má taka það fram að Hermann er einungis 8 ára gamall. Í kvennaflokki áttum við einn keppanda, Sóley Þrastardóttir. Þar sem Sóley var of öflug fyrir kvennaflokkinn, var hún látin keppa í karlaflokki og stóð verulega í andstæðing sínum. Helgin var í alla staði frábær og gott veganesti inn í framtíðina.
Brotið blað í sögu UMFN
Nú hefur Júdódeild UMFN brotið blað í sögu UMFN. Við fórum með tvö keppendur á Meistaramót Íslands í Glímu. Njarðvíkingar hafa aldrei verið með keppanda í Glímu. Fóru þeir Bjarni Darri Sigfússon og Birkir Freyr Guðbjartsson til Hvolsvallar til að etja kappi við sterkustu Glímumenn landsins í öllum aldursflokkum. Birkir tapaði sínum viðureinum enda átti hann ekki við neina auðkvisa. Hann stóð þó vel í þeim sem hann keppti við. Bjarni Darri keppti í flokki 12ára (ekki neinir þyngdarflokkar). keppendur í þeim flokki voru sex talsins. Bjarni Lagði 3 keppinauta sína og tapaði fyrir einum sá vann flokkinn og Bjarni náði þeim góða árangir að landa silfri. Á þessu ári hefur júdódeildin unnið til verðlauna í öllum helstu fangbrögðum sem iðkuð eru á Íslandi.
Afmælismót JR
20 júdó menn og konur tóku þátt í afmælismóti JR síðastliðinn laugardag. Allir voru leystir út með verðlaunum eftir góðan árangur. Flesir voru að keppa á sínu fyrsta móti og stóðu sig með stakri prýði.
Útsala
BUSHIDOBardagavörumarkaður - rýmingarsalaSunnudaginn 16. október kl. 10-16:00Smárinn, íþróttahús Breiðabliks Karategallar, judógallar, taekwondogallar, stakar buxur og stakir jakkar.Eldri gerðir af hlífum (hendur og fætur) -Taekwondobúkhlífar (nýtast fleirum)Bardagaskór - Bardagaprik - makiwaraofl. ofl. Fáránleg verð! Um er að ræða lager frá Útilíf sem nú er kominn í hendur Bushido en jafnframt verða einhverjar vörur frá Bushido settar á útsölu samhliða.Bushido-verslunin verður opin á sama tíma með sýnar frábæru vörur frá Budo Nord og Fighter.
Stórkostlegur árangur á Haustmóti JSÍ
Júdódeild Njarðvíkur gerði það gott um helgina. Haldið var eitt af 4 stærstu mótum Júdósambands Íslands. Njarðvíkingarnir glímdu allir virkilega vel og uppskeran var stórkostleg. 11 keppendur háðu keppni, þar af tveir sem voru að mæta á sitt fyrsta mót, 2 þeirra unnu til bronsverðlauna. Það voru þeir Magni Arngrímsson og Kristján Snær Gunnarsson. Til silfur verðlauna unnu þeir Bjarni Darri Sigfússon, Ævar Þór Ómarsson, Hilmar Þór Magnússon og Sæþór Berg Sturluson. Til Gullverðlauna unnu þeir Birkir Freyr Guðbjartsson og Alexander Hauksson.
Júdódeildinn var í þriðja sæti af átta í stigakeppni liða.
Til hamingju með glæstan árangur og drengilega og góða keppni.
Júdódeildinn var í þriðja sæti af átta í stigakeppni liða.
Til hamingju með glæstan árangur og drengilega og góða keppni.
Mjölnir Open
Sleipnismenn fóru í Víking um helgina. Júdódeildin sendi þrjá keppendur til leiks á Mjölni Open 6 sem er sterkasta mót sinnar tegundar á íslandi. Á mótinu voru þar á meðal bestu bardaga menn okkar íslendinga þeir Gunnar Nelson, Þráinn Kolbeinsson og Sighvatur Magnús Helgason einnig voru þarna keppendur frá öðrum þjóðum. Guðmundur Stefán Gunnarsson Keppti í +99kg flokki og Helgi Rafn Guðmundsson og Björn Lúkas Haraldsson kepptu í -77kg flokki. Guðmundur vann allar sínar glímur á hengingum og hlaut fyrsta sætið í sínum flokk.
Helgi Rafn sigraði sínar gímur í öllum regnbogans litum, með hengingum, lásum og stigum. Björn Lúkas sem er einungis 16 ára Grindvíkingur og einn efnilegasti Brazilian jiu jitsumaður Íslands sigraði allar sínar glímur á fótalásum, armlásum og hengingum, nema eina sem var á móti Helga Rafni Guðmundssyni. Úrslita glíman var því háð af tveimur Sleipnismönnum þar sem þjálfarinn endaði með því að hafa lærlinginn undir.
Júdódeild Njarðvíkur náði besta mögulega árangri á þessu móti sem hægt var að ná tvö gull og eitt silfur.

3 Þáttakendur frá JDN Sleipni á Mjölni Open
Þrír þáttakendur taka þátt fyrir hönd JDN Sleipnir á Mjölni Open það eru þeir Guðmundur Stefán Gunnarsson, Helgi Rafn Guðmundusson og Björn Lúkas Haraldsson. Þetta er sterkasta BJJ mót án galla sem haldið er á Íslandi og þó víðar væri leitað.
Mótið verður í gamla loftkastalanum sem nú heitir Mjölnishöllin.
Við hvetjum alla sem áhuga hafa á að mæta og styðja okkar menn.
Mótið verður í gamla loftkastalanum sem nú heitir Mjölnishöllin.
Við hvetjum alla sem áhuga hafa á að mæta og styðja okkar menn.
Skráning
Skráning í júdódeild Njarðvíkur verður þriðjudaginn 23. ágúst klukkan 16:30-19:30 á efri hæð íþróttahúss Njarðvíkur.
Á síðasta tímabili var allt fullt hjá okkur. Því borgar sig að mæta tímanlega Við höfum bætt við okkur nokkrum tímum til að veita sem flestum færi á að iðka íþróttina.
Þjálfarar verða eftirfarandi:
Yfirþjálfari er Guðmundur Stefán Gunnarson kennari og íþróttafræðingur. Hann sér um þjálfun barna og unglinga og mestmegnis alla fullorðinsþjálfun.
Helgi Rafn Guðmundsson kennari og íþróttafræðingur sér um alla brazilian jiu jitsu þjálfun fullorðina.
Æfingagjöld
Við búumst ekki við að vera með nein æfingagjöld en frjáls framlög eru vel þeginn til reksturs deildarinnar.
Reikningur félagsins er 0121-26-016802 og kennitalan er 6802110430
Engin vetlingatök.
Við kíktum í Sandvíkina og glímdum. Gunnar B. Sigurðsson Júdó og Glímukappi kom og kíkti við og gaf okkur ýmis góð ráð. Svitin og tárin :) voru skoluð af í sjónum þegar við vorum búnir að takast á. Grillaðar voru pulsur og slakað á eftir skemmtilegan eftirmiðdag.
Heimsókn til Grindavíkur.
Júdódeildin fór á æfingu til Grindavíkur hjá hinum goðsagna kennda þjálfara Jóa Júdó. Þar glímdu krakkarnir við tvöfaldan norðurlandameistara Björn Lúkas "Lee" og Íslandsmeistarann Sigurpál "Sleggju" Albertsson einnig voru þarna aðrir sterkir júdómenn. Við þökkum Grindvíkingum innilega fyrir góðar móttökur.
Sumaræfingar
Allar æfingar verða frá 1630-1800 mánudaga - föstudaga í sumar. Unglingar og fullorðnir æfa saman.
Sumarfrí hjá yngstu hópum
Nú er sumarfrí hafið hjá yngstu hópum júdódeildar UMFN (6-11). Æfingar hjá unglinga og fullorðnum haldast óbreyttar út maí.
Úrslit Páskamótssins
Páskamót JR var um helgina. Um 100 keppendur mættu til leiks. Júdódeild Njarðvíkur mætti galvösk og vann marga góða sigra fyrir utan að glíma mjög skemmtilega. Medalíurnar urðu alls sjö, eitt gull sem Samúel G. Luppi tryggði, þrjú silfur sem þeir Hermann Nökkvi Gunnarsson, Birkir Freyr Guðbjartsson og Ævar Örn Ómarsson tryggðu sér og bronsin unnu Kristján Snær Jónsson, Sóley Þrastardóttir og Helgi Snær Elíasson. Hlutfallið af þeim sem tóku þátt og af þeim sem unnu til verðlauna var því rétt tæplega 60%.
Júdódeilin af stað með látum!!
Júdódeild UMFN fer af stað með þvílíkum látum. Um helgina fóru 12 keppendur á Vormót JSI sem er eitt öflugasta mót á landinu. Allir keppendur stóðu sig frábærlega og voru einstaklega sókndjarfir. Deildinn kom með 6 bronsmedalíur og eina gullmedalíu heim í Njarðvíkurnar. Hilmar Þór var í þriðja sæti í -34kg flokk Barna, Michael Martin Davíðsson varð þriðji í -55kg flokki unglinga, Í -66kg flokki unglinga vorum við með tvo keppendur Karel Bergmann Gunnarsson sem varð þriðji og Ævar Þór Ómarsson sem vann allar sínar glímur á Ippon eða fullnaðarsigri og hlaut því fyrsta sæti í flokknum sem er frábær árangur þó ekki sé minna sagt. í Í +90kg flokki hlaut Eyþór Salomon Rúnarsson brons og í þungavigtinni krækti Birkir Freyr Guðbjartsson sér í brons. Í stúlkna flokki varð Sóley Þrastardóttir í þriðja sæti í +52kg flokki.
Þessi árangur er frábær ef við miðum við að UMFN mætti með 12 keppendur með lægstu gráðu og við komum heim með það magn verðlaunapeninga sem varð raunin.
Þessi árangur er frábær ef við miðum við að UMFN mætti með 12 keppendur með lægstu gráðu og við komum heim með það magn verðlaunapeninga sem varð raunin.
Björn Lúkas gráðaður upp í blátt belti í Brazilian Ju-jitsu.
Björn
Lúkas var að fá bláa beltið í bjj í kvöld. Arnar Freyr var með
æfingabúðir og duglegt Iron man fyrir Björn í lokin. Arnar var mjög
ánægður með Björn og sagði að hann ætti beltið fyllilega skilið.
Frábær árangur á unglingamóti Mjölnis
16 unglingar á aldrinum 12-17 ára tóku þátt á Unglingamóti Mölnis í brazilian ju-jitsu. Keppt var í 4 flokkum. Krakkarnir í Júdódeilinni stóðu sig allir frábærlega.
Bjarni Darri vann yngsta flokkinn sem var skipaður krökkum á aldrinum 11-13áral. í flokk -65kg flokkii 14-15ára var Guðmundur Jón í öðru sæti og Karel Bergmann í því þriðja. Í sama aldursflokki +65kg var Björn Lúkas í fyrsta sæti. Í Elsta hópnum og þeim erfiðasta vann Guðmundur "Öflugi" Hammer til bronsverðlauna.
Frábær árangur hjá hinni ungu júdódeild.
(myndir frá mótinu er hægt að sjá undir myndir/unglingamót Mjölnis)

Íslandsmót unglinga
Íslandmót unglinga (U20) Var haldið um helgina. Júdódeildin sendi tvo keppendur á mótið. Það voru þeir Sæþór Berg Sturluson í þungavigt 15-16 ára og Ólafur Magnús Oddsson í þungavigt 17-20 ára. Ólafur uppskar brons og Sæþór nældi sér í verðskuldað silfur þar sem hann hengdi andstæðing sinn í viðureigninni um annað sætið. Þess má einnig geta að í heildina voru suðurnesjaliðinn í ham. Strákarnir í grindavík eignuðust tvo Íslandsmeistara í hópi 15-16 ára og þeir sem ekki urðu íslandsmeistarar fengu silfur.
Júdódeild UMFN hefur fengið góðan liðsstyrk. Sigurður Már Birnisson hefur tekið við stöðu framkvæmdarstjóra deildarinnar.
Hákarlalýsi og bitafiskur til sölu fyrir Júdódeild UMFN
Jæja þá erum við komnir með nokkrar flöskur af hágæða hákarlalýsi og harðfisk í hús.
0,5l af lýsi eru á 2000kr og pokinn af bitafisk á 1200kr.
Reynið nú að taka niður panntanir hjá vinum og ættingjum.
Það má líka pannta beint í gengum mig gudmundurstefan@gmail.com ef einhver er að le
0,5l af lýsi eru á 2000kr og pokinn af bitafisk á 1200kr.
Reynið nú að taka niður panntanir hjá vinum og ættingjum.
Það má líka pannta beint í gengum mig gudmundurstefan@gmail.com ef einhver er að le
Silfur og brons á ÍR mótinu.
Júdódeild UMFN fór í víking um helgina. Frá okkur fóru fjórir keppendur. Það voru þeir Sæþór Berg Sturlusson, Ólafur Magnús Oddson, Rúnar Örn Friðriksson og Jón Marínó Magnússon. Sæþór og Ólafur kepptu í flokki 15-18 ára í +85kg flokki þar sem Sæþór vann til silfurverðlauna og Ólafur til Bronsverðlauna. Jón Marínó keppti í flokki 12-14ára og stóð sig með mikilli prýði. Rúnar Örn sem keppti í fullorðinsflokki náði ekki að sýna sitt besta að þessu sinni.
Miðað við ungan aldur deildarinnar verður þetta að teljast góður árangur.
Þess má einnig geta að allar deildir á suðurnesjum voru sigursælar á þessu móti.
Miðað við ungan aldur deildarinnar verður þetta að teljast góður árangur.
Þess má einnig geta að allar deildir á suðurnesjum voru sigursælar á þessu móti.
Komdu í Judo
Stofnuð hefur verið júdódeild í Reykjanesbæ. Kennarar eru Guðmundur Stefán Gunnarson og Helgi Rafn Guðmunsson. Stundatöfulur félagsins er að finna hér á síðunni og félagsgjöldin eru engin eins og er.